
Eitt af meginmarkmiðum fyrirtæksins er að efla tengsl einstaklinga við sjálfa sig, samferðafólkið og náttúruna. Stefnumót á Ströndum, atvinnu- og menningarsýning er dæmi um verkefni sem AssA þekking & þjálfun tekur að sér.
Stefnumót á Ströndum er stórt tengslamyndunarverkefni þar sem leitast er við að efla tengsl ólíkra aðila á Ströndum með því að leiða saman hefðbundna og óhefðbundna starfsemi. Er það von okkar að farsælt samstarf ólíkra aðila efli byggð og verði kveikja að nýjum hugmyndum til framfara.
Þróunarsetrið á Hólmavík og Arnkatla 2008, samtök ferðaþjónustuaðila í Reykhólasveit og Ströndum, standa fyrir sýningunni en AssA, þekking & þjálfun sér um framkvæmd hennar. Um 60 sýningaraðilar, fullorðnir jafnt sem börn, taka virkan þátt í sýningunni sem er bæði fjölbreytt og fróðleg.
Mikil hátíðardagskrá fór fram laugardaginn 29. ágúst 2009 þegar sýningin var opnuð í Félagsheimilinu á Hólmavík. Forsetahjónin, herra Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff, heiðruðu Strandamenn með nærveru sinni á opnunardaginn en forsetinn er verndari sýningarinnar.

Vinahlaup yfir Arnkötludal
Dagskráin á opnunardaginn hófst með vinahlaupi yfir nýjan veg um Arnkötludal sem verður opnaður seinna í haust. Vegurinn mun efla samgöngur og tengsl Strandamanna og íbúa í Reykhólasveit.

Um það bil 30 hlauparar á öllum aldri, vanir og óvanir, tóku þátt í hlaupinu fyrir hönd Héraðssambands Strandamanna og hlupu þeir með vinakveðju til móts við nágranna þeirra í Ungmennafélaginu Aftureldingu í Reykhólasveit. Á miðri leið skipust þeir á vinakveðjum auk þess sem íbúar Reykhólasveitar afhentu Strandamönnum stein í vörðu til framtíðar sem reist var á Hólmavík á opnunardaginn.
Varða til framtíðar
Fjórir ættliðir Strandamanna, Sverrir Guðbrandsson eldri, Guðbrandur Sverrisson, Sverrir Guðbrandsson yngri og Jakob Ingi Sverrisson reistu vörðu til framtíðar fyrir utan Félagsheimilið á Hómavík á opnunardaginn. Allir þeir sem komu að sýningunni sem og gestir hennar komu með stein í vörðuna úr sinni sveit. Steinarnir komu víða að, m.a. frá Vestmannaeyjum, Borgarnesi og Bolungarvík. Forsetahjónin komu með steina frá Bessastöðum sem þau lögðu í vörðuna.
Stefnumót á Ströndum, atvinnu- og menningarsýning verður opin til 15. september og verður sett upp aftur vorið 2010.
Myndir: Ágúst G. Atlason




