Hin sívinsælu: Eyvindur og Halla
Fyrir hjón/pör sem setja sambandið í fyrsta sæti og vilja eiga gæðatíma saman
Eflum starfsmannahópinn, skólafélagana, vinahópinn, saumaklúbbinn, ættina hans pabba...Röðin er komin að ykkur! Eyvindur og Halla lögðu mikið á sig á gríðarlegum hlaupum um landið - allt fyrir ástina. AssA, þekking & þjálfun í samstarfi við Esjustofu, veitinga og þjónustumiðstöð við Esjurætur, býður nú upp á gæðatíma fyrir hjón/pör sem vilja það sama og þau - setja ástina í fyrsta sæti á ljúfum laugardegi, leika sér, slappa af og eiga gæðatíma saman. Tilvalið fyrir áhugasama að ganga á Esjuna að námskeiði loknu.
Markmið - Áherslur
Setja okkur í fyrsta sæti!
-Staldra við í hraða hversdagsins og upplifa...
-Staldra við í hraða hversdagsins og upplifa...
Leika okkur!
-Brosa, hlæja, njóta og eignast öðruvísi minningar.
-Brosa, hlæja, njóta og eignast öðruvísi minningar.
Gera gott betra!
-Undirstrika það besta sem við eigum.
Dreyma!
-Horfa til framtíðar: Hvað langar okkur - og hvernig ætlum við þangað?
-Undirstrika það besta sem við eigum.
Dreyma!
-Horfa til framtíðar: Hvað langar okkur - og hvernig ætlum við þangað?
Aðferðir
- Upphitun: Léttir leikir
- Samvinnuverkefni: Þar sem hjónin/pörin vinna saman.
- Sóló: Stoppa, upplifa, finna, ígrunda, ná í það besta...
- Óhefðbundin verkefni: Notuð til að hugsa um okkur.
Eignist öðruvísi upplifun útaf fyrir ykkur, tvö í kyrrðinni.
Næsta námskeið: Laugardaginn 13. febrúar - góð upphitun fyrir Valentínusardaginn.
ATH: Örfá pláss laus!
ATH: Örfá pláss laus!
Tímasetning: 10:00 - 13:00
Staðsetning: Esjustofa, veitinga- og þjónustumiðstöð við Esjurætur. Esjustofa er staðsett við hliðina á bílastæðinu við Esjuna, sjá www.esjustofa.is
Verð: Kr. 7.800 fyrir par. Innifalin er sérstök og eftirminnileg morgunstund í fallegu umhverfi við Esjurætur, hádegisverður fyrir tvo sérhannaður í Esjustofu, heitt og hressandi á könnunni, námskeiðsgögn.
Skráning/gjafabréf: Tekið er á móti skráningum og pöntunum á gjafabréfum í síma 616 9770, í netfangið assa@assaisland.is, en einnig er hægt að hafa samband hér.
|
|
Stjórnendaþjálfun![]() |
Starfsmannaþjálfun![]() |
Hópefli![]() |
Eyvindur og Halla. Nýtt!![]() |
Starfar þú með ungu fólki?![]() |
Fjör í 45 mínútur!![]() |



.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)
.jpg)